Bull. Skítugt hár er Awsome, og þú veist það. Svona.. villimannslegt. skítt með ykkar sjampó og sturtuhefðir.
Engin furða að ónæmiskerfið í mannkyninu sé að slökkva á sér þegar þig baðið allt í, antivirus regeneration skin cellulear recostructeon moisturising ph 5.5 silicon stretching shit! Baða sig í vatni er fínt. virkaði í nokkur hundruð MILLJÓN ár.. en hey… hvað veit ég.
Flestar 18 ára stelpur hafa ekki séð andlitið á sjálfum sér í 4 ár því þær halda þær líti betur út með málningu. Alltaf að reyna bæta eitthvað sem var nógu fallegt fyrir :( ákveðin hefð.. eins og sturta, og sjampó, svo ákvað fólk að ýkja þetta aðeins. fólk fer í sturtu 5 sinnnum í viku og notar sjampó 3 sinnum í viku og stelpur mála sig 12 sinnum í viku og þetta endar í kjaftæði.
Ég var einu sinni með stelpu sem hafði aldrei málað sig. við vorum saman frá 17 til 19 ára. hún plokkaði augnbrýrnar aðeins til en klessti ekki málningu framan í sig… neinstaðar. ekki þetta… “ohh ég er bara með eyelinear kjaftæði”.. hún notaði ekki neitt. ever..
Þetta er hreinlega fallegasta stelpa sem ég hef séð.. Ever! hún hafði ekkert að fela, engar varir til að ýkja með varalit eða búa til lit fyrir svona dagsbirtu og allt það sem þið gerið. ekkert púður og bara ekki neitt. hún bara vaknaði og fór á fætur eins og við.
Stelpurnar öfunda hana enn í dag. hún er bara hún sjálf og þær eru enn með plastgrímu framan í sér. allt þetta “vítamin” “anti aging” og bara vá… nöfn sem eru til yfir þetta rugl. þessi MÁLNING sem þið eruð að smyrja framan í ykkur!. því meir sem þið reynið að búa eitthvað til, því meir eruð þið að fela hvernig þið í raun eruð.
Fyrir mér er ekki til stelpa sem er ekki falleg. Ég meina hey!.. ALLT kvenfólk er fallegt fyrirfram. Stelpa + ég = Good Times :) Margar ykkar hitta stráka á djammi og þora aldrei að taka make-ið af ykkur.. þið bara sofið með það og endurnýjið næsta dag… nýr dagur, ný gríma.
Sum okkar hafa verið lengi í sambandi. kannski nokkur ár. en ég veit um nokkra vini mína sem hafa aldrei séð kærustu sína ómálaða. 2-3 ár og þú veist ekki einusinni hvernig hún lítur út í alvöru??
Stelpan sem ég var með sem unglingur hefði örugglega getað málað sig og litið út eins og fyrirsæta ef hún vildi. búið til grímu og aðra manneskju til að lifa gegnum. En þá hefði ég aldrei verið með henni. En bara það að sjá hana eins og hún var.. hálf kærulaus eins og við öll þá, afslöppuð og gat séð um sig sjálf. tók mig meira segja í gegn þegar ég var ekki að standa mig. Hún sá um mig og ég um hana. engar grímur, ekkert rugl.
Þið gerið þetta eflaust margar. pírið augun með smá svörtum lit, lengið augnbrýrnar, augnhárin líka, púðrið andlitið svo húðin líti út fyrir að vera fædd í gær. litur hitt, litur þetta, púður hitt og… einn daginn ertu ekki lengur þú sjálf. Og næsta dag þorir þú ekki að taka grímuna af þér því þú heldur að svona sjái fólk þig. satt?
P.s: Ég vil frekar fallega stelpu en fallega Grímu.