Selected selja mjög góð jakkaföt, það gera Kormákur og Skjöldur líka. Herragarðurinn er líka mjög góð verslun sem selur mjög góð föt, Herrafataverslun Guðsteins Eyjólfssonar er líka góð. Moods of Norway selur líka rosalega flott jakkaföt, bæði í mjög miklum munstrum og svona semi-plain. Annars, ef þú ert að leita að verulega flottum og dýrum jakkafötum er það náttúrulega bara Hugo Boss.
Fleiri verslanir koma til greina, en þetta eru þær helstu. Hvað varðar vefsíður er mjög lítið til af því hjá íslenskum verslunum, mæli með því að þú gerir þér bara ferð og skoðir úrvalið hjá þessum verslunum.
Bætt við 9. febrúar 2009 - 01:33
Herrahúsið er líka gott.