Ég er að skipta all hressilega um stíl þessa dagana og er að leita að einhverjum sem getur ráðlagt mér hvað ég geti gert við hárið á mér til að láta það passa við útlitið sem ég er að leitast eftir.
Ég vil bara sleppa einhverjum lausum á hausinn á mér, go crazy og gera það sem hann/hún gerir best! Hverjum mælið þið með?? (Ég veit ekki hvað svonalagað gæti kostað, en ég er ekki til í meira en 15 þúsund kall :)
rauðhetta og úlfurinn, Svo var til svolítið sem kallaðist Freaky Friday á Gel galleri, þar sem maður settist í stólinn og klipparinn went nuts og þú mátt ekkert segja, held að það sé þannig á rauðhettu og úlfinum líka.. En annars er rauðhetta og úlfurinn háklassastofa og ógeðslega færir klipparar þarna. Ef þú ferð endilega biddu um Sverri, hann er mjög fær og mjög skemmtilegur líka. Hef farið til gosa líka og hann var líka góður.
ég mæli bara með Danna niðrá center hann er æði bitinn minn <33 og hann er með hugmyndirnar í lagi, ekkert ódýr og ef þú ert ekki vön/vanur að koma þangað er erfitt að fá tíma hjá honum enn ttly worth it.!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..