Er heilalaust að segja að það sé ekki heilbrigt að vera með fetish fyrir fitu?
Hvað er heilbrigt í dag?
í dag finnst fólki BDSM, S&M, golden shower, gang bang og allt fram eftir því bara allt í lagi, eða, þetta er viðurkennt í samfélaginu. Það er ekkert óeðlilegt í sjálfu sér að heillast að þessu þó þetta stingi í stúfa við “normið” þ.e; að sársauki og sóðaskapur sé ekki heilbrigð nautn.
Sumir fýla það rough, jafnvel stingandi sárt. Sumir fíla gag balls og að láta sleikja á sér tærnar. Og, ekki má gleyma, að sumir fýla feita/þykka/stærri kanntinn/jolly hvað svosem þú vilt kalla það.
Ég meina, sumum finnst einstaklega þokkafullt að sjá einstakling taka smók af sígarettu og þar með laðastu að manneskjunni sem reykingarmanneskju. Er það óheilbrigt eða bara persónulegt opinion? Ég meina samkvæmt þér væri það óeðlilegt þar sem sígarettur eru óheilbrigðar. Óeðlilegt er að laðast að óheilbrigði, right?
En er ekki réttast að líta á heildina? Við sem heild, samfélag, leggjum grunninn saman að því sem er rétt og rangt en skoðanir okkar eru samt alveg gígantískt misjafnar. Það er ekkert til sem heitir óheilbrigð skoðun nema hún stuðli að rangri breytni í garð þíns eða náungans.
Og hvað í fjaaandanum meina ég með því?
Nú t.d. finnst okkur öllum hér eflaust löngun til að sofa hjá litlu barni röng. Ef sú skoðun gefur af sér það afkvæmi að breytni (gjörð) sé framkvæmd í þeirri hugsun, t.d. misnotkun, skoðun barnakláms og etc. etc. þá er skoðunin röng og óheilbrigð.
Ekki skal skjóta persónulegt álit fólks niður, því eflaust finnst ykkur ekki það sama.
Ég segi einfaldlega, ef manneskjan er full af sjálfstrausti að innan þá ósjálfkrafa skín af henni útgeislun sem gerir hana bæði líkamlega og andlega fallega (: