Of hvítur, vantar hjálp
Sp: Sæll Gillzi Heyrðu þannig er mál með vexti að ég er rauðhærður og með mjög ljósa húð. Mér langar til þess að vinna í litnum því ég er alltof hvítur en ég brenn alltaf þegar ég fer í ljós. Ég gjörsamlega skaðbrenn alltaf í andlitinu, hvað á ég að gera?
Sv: Sæll og blessaður Whitey. Ég skil áhyggjur þínar mjög vel, sem betur fer á ég ekki við þetta vandamál að stríða, ég myndi líklegast hengja mig. En ég er með skothelt trikk fyrir þig. Þetta er trikk sem ég hef gefið strákunum þegar þeir eru að fara að djamma eftir hálftíma og þurfa að vera tannaðir. Þetta trikk hefur hingað til verið leyndarmál, en G-Maðurinn hugsar um the fans! Það sem þú gerir Whitey er að þú leggst öfugt í bekkinn. Þá eru tærnar á þér þar sem andlitsljósin eru. Núna hugsarðu væntanlega Whitey, “Er Stóri G-Maðurinn að fokka í mér!” En nei gamli minn! Ástæðan fyrir þessu er að þó að þú lækkir andlitsljósin niður í lægstu stillinguna þá er það alltaf sterkara en perurnar sem eru á your white body. Þannig að þú lendir ALDREI í því að verða rauður í framan ef þú gerir þetta. Fyrir venjulegt fólk er þetta fínt rétt áður en maður fer á djammið, en fyrir svona hvítt retardet fólk eins og þig þá er þetta bara alltaf gott.
Gangi þér vel gamli! Kv, G-Maðurinn