Brazilian Tan er besta brúnkukremið sem ég hef prufað, og örugglega margar stelpur hér sem myndu mæla með því.
Það fæst til dæmis í Hagkaup og kostar örugglega ekki mikið meira en 2000 kall.
Þú verður samt að passa þig soldið á því, því liturinn festist í húðinni á 1 mínútu. Best er að vera með latex/vinyl hanska þegar þú berð það á þig.
Áður en þú berð á þig kremið er algjört must að vera búin að skrúbba húðina vel með kornakremi til að fjarlægja dauðar húðfrumur, annars verður þú flekkótt og það er ekki fallegt.
Svo er best, til að liturinn verði sem jafnastur, að bera rakakrem (helst lyktarlaust) á húðina rétt áður en þú berð á þig brúnkukremið.
Gangi þér vel. :)