Gætir tékkað í Hagkaup, en ég held að það sé hætt að selja það allstaðar. Keðjan sem ég vinn hjá er hætt að selja rauðhærðu línurnar frá bæði John Frieda og Marc Anthony.
að sjálfsögðu.. við rauðhærða fólkið eru hvort sem er í útrýmingarhættu…. af hverju að eyða í svona takmarkaðan markhóp….
ég lendi mjög oft í þessu, en ef þú ert að leita að virkilega góðum hárvörum sem endast þá færði ég mig yfir í Aveda og hárið mitt gjörbreyttist… :) gangi þér vel…
Þú getur tékkað hjá apótekinu hvort það geti pantað fyrir þig, ég er að vinna hjá Lyf og heilsu og við erum alltaf að sérpanta rauðkusjampó og næringu. Þarft ekki að borga neitt aukalega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..