skinny buxurnar eru ennþá inni… þær eru ekkert á leiðinni út!
svo eru það þessar háu upp í mittið. ég hélt að þær væru að fara að detta út, en það er komið meira af þeim í diesel og miss sixty t.d.
auðvitað eru bootcut og beinar alltaf inni líka, en ég er ekki að sjá fram á að þessar mega víðu celeb buxur komi hingað, ég hef allavega ekkert orðið vör við þær.(veit einhver hvar þær er að finna?)
svo að síðustu er það nýtt snið sem er t.d að koma hjá diesel, það eru buxur með gulrótarsniði, sem eru samt ekki þröngar. þær sitja voða loose á manni, og rassvasarnir og klofið eru t.d frekar neðarlega. KLIKKAÐ þægilegar buxur og fyrir þær sem fíla pínu baggy snið.
litirnir eru allt mögulegt. allt sem þér dettur í hug! auðvitað göngum við oftast meira í dökkum gallabuxum yfir veturna, en ljósljósljósbláu þvottarnir eru samt að koma núna í lok sumarsins.
ég versla mínar buxur út um allt. topshop, miss sixty, sautján, zara, kron kron… name it.
“Imagination is the only weapon in the war against reality.”