Góðan dag.
Ég var að spá hvernig lykt er af redken sjampóunum? Mig langar svo að prófa svoleiðis sjampó og lyktin af sjampóum skiptir mig miklu máli. Mér finnst bara svo asnalegt að fara á hárgreiðslustofu og þefa af redken sjampói og finnst það svo ekki góð lykt þannig að ég segi bara bæ og enda með að versla ekkert. Eða hvað?
Öll svör vel þegin :)