Af minni persónulegu reynslu fannst mér ókostirnir vera hvað var leiðinlegt að sjá um þetta, greiddi oft á dag og flæktist mikið, klæjaði oft í hausinn og það fór í taugarnar á mér að finna fyrir líminu þegar ég var að fikta í hausnum á mér en það var bara smámunasemi í mér.
Kostirnir eru jú að þú ræður algjörlega síddinni, getur séð hvernig þú lítur út með sítt hár, gaman að geta gert einhvað flott í hárið og svona ef maður nennir því og hárið þykkist.
Myndi bara segja að ef þú tímir og átt pening þá bara slá til, alltaf gaman að prófa einhvað nýtt.
Bætt við 21. júní 2007 - 20:38
Og nei fannst þetta ekki vont, hvorki meðan þetta var gert né eftir á.. nema fékk hausverk um nóttina og kvöldið því það var búið að fikta svo mikið og toga í hárið á mér og var ekki vön þunganum á hárinu. Og svo kláðinn í hausnum því það náttúrulega togaði svolítið í mitt eigið hár.
And So Kiddies…Death For All, Right Right??