Suuuumarföt! Oh já.. Ég ætla ekki að versla neitt fyrr en ég fer til Noregs í júní:) Og þá ætla ég að fylla allt af litríkum sumarfötum, kjólum og þannig:)
Ég var ekki búin að kíkja almennilega í búðir í vikur eða mánuði þegar ég fór á búðarráp í Kringluna um daginn. Tók aðallega eftir mikilli litadýrð og ópraktískum efnum í bolum og kjólum sem ekki má þvo í þvottavél. Annars var ekkert sem ég sá sem ég missti mig yfir, allt sem maður horfði framhjá en litadýrðin kemur manni oft í gott sumarskap :)
Ég er búin að kaupa mér sumarföt, aðallega af Ebay. Þar á meðal þessar buxur. Framan á og aftan á. Þessa peysu og reversible peysu, bómullarhlið og satínhlið.. Já ég er hettupeysu sjúklingur :/
Eða fatasjúklingur.. Ég er alveg búin að kaupa mér meira stuff.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..