Ég hef venjulega litað hárið á mér á stofu, en þar sem ég er einstaklega blönk ákvað ég að kaupa mér pakkalit núna. Ég keypti l'oreal creme gloss í hagkaup á tæpan 1500 kall og það virkaði bara vel:) Þetta er samt ekki fastur litur, hann fer úr á 30 þvottum. En þetta er svo ódýrt, og tekur 20 mínútur, það er ekkert mál að gera þetta þá bara aftur!
Ég var samt með litinn í of lengi svo að endarnir urðu dekkri en hárið.. En það gerist eiginlega alltaf, svo það er eiginlega best bara að fara bara í klippingu beint eftir. (sem ég er ekki búin að gera sökum peningaleysis:P) Og svo er þetta líka bara ógeðslega fierce og kúl.
Gangi þér vel:)