Herrafataverslun kannski?
Annars fer það bara eftir því hvernig skyrt þú ert að leita að. Ef þú ert í leit að aðsniðinni töff skyrtu til að vera í einni og sér, þ.e. ekki við jakkaföt, þá mundi ég mæla með Gallerí 17 eða Jack&Jones, báðar verslanirnar eru í Kringlunni. Zara gæti líka verið með eitthvað.
Annars held ég að lang mesta úrvalið væri í Next. En þú færð skyrtur í öllum helstu herrafataverslunum landsins, þannig kíktu bara í Krinluna eða Smáralindina og þú munnt bókað finna eitthvað.
Ef þú ert tilbúinn til þess að eyða mjög miklu og villt fá háklassa skyrtu geturu náttúrulega kíkt á Sævar Karl á Laugarveginum.