Hmm, kemur oft vel út að nota ljósa liti eins og einhver sagði. Með augnskugga og annað fer það mikið eftir hvernig augun á þér eru á litin hvernig augnskugga þú getur notað til að draga fram augnlitinn. Flestir búnir að segja þér að nota ljósa liti en ég er t.d með mjög ljóst hár og meðal-húð bara, frekar ljósa en nota sólarpúður til að lífga upp á hana og ég nota oft mjög dökka liti um augun, mér finnst það fara mér betur. Málið er bara að passa sig að líta ekki út eins og.. well, eitthvað. Verður að kunna að nota litina og ekki nota of mikið vegna þess að getur komið illa út að vera með mjög ljóst hár, mjög ljós augu og kolsvört um augun.