Ég er með gat í tungunni, ekkert svo sárt að fá það (lét gera í eyrun með nál og það var verra!) það greri á nokkrum dögum og hefur aldrei verið til nokkurra vandræða, engin sýking né neitt.
Eina sem þú þarft svo að gera til að vernda tennurnar, er að fara og fá styttri pinna þegar þetta er gróið og setja á plastkúlur! Það er ekki þægilegt þegar maður bítur í járnkúlu á meðan maður er að borða :/