æji ég meina það eru nottla framleidd sólgleraugu sem eru með það lítilli dekkingu að þau gera þér ekkert erfitt fyrir að sjá þó þú sért með þau í myrkri. Þetta var rosalega heitt hérna fyrir nokkrum árum, að vera með sólgleraugun á djamminu, en það er alveg dottið út núna og það er mjög sjaldgæft að maður sjái fólk með sólgleraugun niðrí bæ í myrkri. Það verður auðvitað frekar asnalegt þegar þú ert sá eini með sólgleraugu í hópnum, en ef það er þriðji hver maður með sólgleraugu er það bara mjög töff.