Ekki láta þér detta það í hug að þú sért eina stelpan í heiminum með bólur og fýlapensla…þetta lét mig verða með mjög lítið sjálfsálit, en sem betur fer, fer það mikið hækkandi :) (er heldur ekki með eins mikið af bólum áður, þótt ég sé með)
Farðu til læknis eða húðsjúkdómalæknis og hann finnur eitthvað gott krem handa þér. Svo skaltu þvo húðina kvölds og morgna, ég mæli með á hreinsimjólk og hreinsivatni.
Svo skaltu reyna að nota sem minnst af þessu púðri, því það er mjög slæmt..það hylur bólurnar en þær hverfa ekki. Farðu eftir ráðleggingum læknisins, og ef þú ,,verður" að fá þér púður, fáðu þér eitthvað annað, því þetta er alls ekki gott púður fyrir þig og alls ekki bólurnar heldur.
Gangi þér vel ;)
An eye for an eye makes the whole world blind