Þú getur ekki kennt gataranum um sýkinguna, það er þitt eigið hreinlæti og hvernig þú ferð með gatið, einnig bara hvernig líkaminn bregst við gatinu. Sumir eiga rosalega erfitt með að vera með göt, hjá öðrum er þetta ekkert mál. Ég fæ sýkingu í öll göt sem ég fæ, og það er ekki útaf því að ég var götuð þarna af þessum. Líkami minn bregst bara illa við þessu (fólk skilur ekki af hverju ég vil halda áfram að gata mig). Sessa er ótrúlega hreinlát og ég get bara gott um hana sagt.
Yfirleitt, þær sýkingar sem fást af stofum og slíku, eru alvarlegar sýkingar. Ekki þannig að það komi rétt svo gröftur og sárið er lengi að gróa, heldur alvarlegar bakteríur sem þarf að skera í burtu eða komast ekkert út úr líkamanum yfirleitt. Það er líka mjög, mjög, mjög sjaldgæft.