Töff, m.v. hvað það getur verið mikið bögg að lenda í árekstri og vera í rétti. Lenti einu sinni í þannig þar sem ég var ein í bíl á móti konu sem var bara ein í bíl, hún bakkaði á mig. Við ákváðum að ganga frá tjónadæminu seinna þar sem þetta var um nótt en neinei, svo vill konan ekkert hitta mig meira og ekkert hægt að gera. Svona getur þetta verið misjafnt. Og… það var brotið afturrúðuna á bílnum mínum af einhverjum hálfvita eina nóttina, sem betur fer var bíllinn í Kaskó, annars hefði ég þurft að borga fyrir rúðuna úr eigin vasa þar sem bara einhver fullur gaur henti bjórflösku í rúðuna…
Úff.. svakalega er það þreytandi að eiga bíl.