Ég keypti mer arabaklút í Spútnik og svo sá eg að ógeðslega margir eru með svona klúta. Þeir eru gg flottir og eru bæði fyrir kk og kvk. Hvað finst ykkur um þessa klúta? ER eg nokkuð Trefill eg er með svona klút?
…En langaði þig í svona áður en þeir komust í tísku?
Skil ekki hvað fólk þarf alltaf að vera sérstakt, um leið og einhver föt sem það klæðist eða tónlist sem það hlustar á kemst í tísku, þá hættir það undireins að nota þessi föt eða hlusta á tónlistina… Mér finnst það alveg jafn asnalegt og að kaupa merki bara því allir aðrir eru í sama merki…
strákur sem ég var með á Ung I norden átti svona og þá fannst mer hann flottur, en nei mig langar ekki að vera með svona sérstakan klút ásamt öllum hinum 300 gelgjum íslands.
Tjah, pínu old trend en fittar ágætlega á artý liðið. En ætti líklega að fara að deyja út eftir allan þennan tíma. Mér finnst þeir alltí lagi svosem..en allir eiga svona.
fannst þeir stopp frekar stutt sko, ásgeir kolbeins byrtist með svona klút á einni mynd og kickstartaði þessu soltið, en svo hefur þetta dvínað smám saman, en samt nokkuð töff sko og maður sér alltaf nokkra með þetta :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..