Ég keypti mér æðislegt rautt gallapils í Spútnik um daginn:D með svona.. uu.. faldi?
,,man ekki hvað það heitir, en það voru allavegna fullt af svona pilsum í Spútnik þegar ég keypti mér, en fá í hverjum lit.. :)
ég á líka annað blátt bara úr Spútnik, þau eru mjög flott þar einmitt og á minnir mig 2900 kr. en þessi með faldinum kostuðu alveg 5200 kr. Spútnik er s.s með mikið af flottum stuttum gallapilsum, um að gera að kíkja!
Svo er líka um að gera að leita í fataskápnum hjá pabba eða afa og leita að stórum buxum með stórt klof og klippa sér bara til pils!(endilega fá leyfi fyrst samt..;))
Ég gerði það við svartar Lee gallabuxur sem ég fann inní fataskáp hjá litla bróður mínum og það er ein mest notaðasta flíkin í fataskápnum mínum núna!