hvennig fæ ég mömmu&pabba til að leifa mér að fá 4,5 gatið í eyrun?
Bætt við 20. september 2006 - 15:46 öm sko sry lélega lýsingu er aðp meina fjórða&fimta gatið í eyrun. ég ætla láta skjóta&éger bara 14 svo ég þarf leifi ;D ég er með 2 í vinstra eyra&1 gat í hægra
Þau vilja ekki vera vond, bara ala þig upp. Og gera sitt besta. reyndu frekar að vinna með þeim, vinna fyrir því staðinn að mæta allt í einu með eitthvað gat sem þú þorir ekki að sýna foreldrum þínum við ótta af að þau fái hjartaáfall.
Talaðu við þau, segðu að þig langi í þetta og sért tilbúin til að leggja eitthvað í að fá þetta. Traust er mjög mikilvægt ef þú vilt að foreldrar þínir leyfi þér framvegis að vera úti með vinunum og þess háttar, og eitthvað svona atriði er t.d. það sem lætur foreldra treysta börnunum sínum verr.
Ég þekki reyndar ekki foreldra þína, en prufaðu að fara diplómatísku leiðina í staðinn að fara í einhverri uppreisn sem skilar engu nema gremju; tli að stuðla að heilbrigðu samskipti og gagnkvæmu trausti sem er ofboðslega mikilvægt þegar á reynir.
Hvernig færðu foreldra þína til þess að leyfa þér þetta?! Held að þú getir best svarað því sjálf.. Ekki þekkjum við foreldra þína.. En ég myndi bíða… Ég var mjög uppreisnargjörn á unglingsárunum, gerði alltaf allt sem ég mátti ekki gera BARA til að pirra þau! Þetta voru ekki góðir tímir skal ég segja þér þó að það sé allt í lagi á milli okkar núna.. Afhverju bíðurðu ekki bara þangað til þú verður 18 ára? Hvað ertu annars gömul?
Farðu á fyllerí..komdu heim á rassgatinu og klipptu af þér eyrað fyrir framan foreldar þína og öskraðu “JÁ FOKKING FÍNT, ÖLL GÖT FARIN!!! ERUÐI SÁTT?!?!?! HAAAA?!?!?!”.
Eða þú getur bara unnið þér inn traust þeirra um að þú vitir hvað þú ert að byðja um…og þau láta eftir..
ok, í fyrst lagi… hvað er 4,5 gat? í öðru lagi… þú ert að fara alltof langa leið fyrir eitt fokking gat, ekki eins ogþað eigi eftir að breyta miklu í útlitinu þínu. þetta gat skiptir nákvæmlega engu máli, ef foreldrar þínir leifa þér það ekki, sleptu því þá bara.
Ertu að djélla í mér, þarf maður leyfi frá mömmu og pabba til að fá sér gat í eyrað? Ég átti heima úti á landi og fór suður í skóla og ekkert allt of mikið af tækifærum þar sem þau geta skrifað undir. Hvað gerist þá?
Ég held hún sé að tala um tunnel … 4,5mm tunnel í eyra. Það telst ekki sem venjulegt eyrnapiercing og er því 18 ára aldurstakmark.. Ég skildi allavega þannig að hún væri að tala um tunnel
Haha.. Jú kannski ekki besta dæmið því þetta tunnel er alveg svakalegt og ekki mjög algengt :) En jú, tunnel er svona gat í gegnum eyrað (eða á hvaða stað sem þú kýst að stækka)
Fyrir einu og hálfu ári fór mamma með mér í Tattú og skart að fá gat í naflann. Ég fékk sýkingu og tók þess vegna lokkinn úr. Svo ætlaði ég að fá mér aftur en þá vill mamma ekki leyfa mér að fá aftur, ‘svo ég verði ekki veik ef ég fæ sýkingu’ *og ég btw.. varð ekkert veik síðast O.o* En málið er að ég lít út fyrir að vera mikið eldri en ég er í rauninni þannig ég get auðveldlega farið á stöð sem taka ekkert hart á aldrinum, og maður fær kannski frekar sýkingu hjá.. Og ég er búin að vera hóta mömmu að gera það ef hún ætli ekki að fara með mér, þannig það eru bara meiri líkur á að ég fái sýkingu komi hún ekki með mér :) Annars virkaði það ekki, og ég er bráðum að fara sjálf og fá mér. En þú getur alltaf prófað ;D Vona að þú skildir þetta.
Ég hélt þú ævrir að tala um tunnel.. Léleg´lýsing :) En allavegana þú átt ekki að þurfa leyfi fyrir gati í eyra held ég.. Allavega getur þú fengið þér gat í eyrað í Hókus Pókus og á hárgreiðslustofum en ég mæli bara ekki með að það sé skotið, þó það sé í eyra
Það er bara ekki mælt með því að skjóta og í sumum ef ekki flestum öðrum löndum er það ólöglegt.. Veit ekki nákvæmlega ástæðuna en það tengist sýkingarhættu, þrifum á byssu o.s.frv..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..