Vá vildi að ég gæti það…
Ég er með heiftarlegt ofnæmi fyrir litnum, í fyrsta skiptið sem ég setti lit þá voru augun rauðbólgin næsta dag og mér leið alltaf eins og að það væri sandur í augunum….svo setti ég alveg ótrúlega lítið (alltaf á stofu), kannski hálfu ári seinna og þá var allt í fína.
Svo viku fyrir ferminguna mína þá lét ég setja ekta lit í þriðja sinn, og lots of it…næsta dag leið mér eins og það hefði verið búið að stinga gaffli í augun á mér, ég fór til læknis, lagði kaldan bakstur á augun, fékk þrjár gerðir af dropum, lóritín og gel til að bera á augun. Ekkert gekk og augun mín voru svo blóðhlaupin að ég leit út eins og zombie :/
Svo lagaðist þaðþþþá fermingunni var húðin í kringum augun samt eins og hreistur, hún var svo þur…ég leit ekki mjög vel út…þurftum að fresta myndatökunni :(
En eftir þetta hef ég haldið mig við maskarann, sem betur fer eru augnahárin ekki að losna eins og hjá korkahöfundi 8/