ég hef fengið dredda hjá þessum Hauk, og þetta er alveg ótrúlega vel gert og vandað hjá honum. Ég hef kynnt mér þetta mikið og veit þónokkuð um þetta mál, og ég ráð legg þér svo innilega ekki fá þér á hárgreiðslustofu. Oftar en ekki tekur fólkið þar bara greiðu og flækir hárið á þér eitthvað út í loftið. Ég veit um stelpu sem að fékk sér dredda á hárgreiðslustofu. Og hún leit nú bara út eins og úfin lofthæna. Hárgreiðslustofan setti ekki einusinni vax í hárið á henni. Hef heyrt um fleiri álíka dæmi en þetta er eina manneskjan sem ég hef orðið vitni af. Ég hef vitað um nokkra aðra sem hafa fengið sé dredda hjá vinum eða öðru fólki sem kann að gera þetta og það virðist vera það eina sem borgar sig og eina leiðin til að fá almennilega dredda hér á landi.
Af sjálfsögðu ættla ég ekkert að fullyrða að allar stofur geri ljóta dredda en ég verð nú að segja að ef þú villt láta fagmenn gera þetta finnuru þá sjaldnast á stofum eða það hefur allavega verið mín reynsla. Annars get ég gefið þér númerið & msnið hjá Hauk ef þú vill. En ef þú villt ólm fara á stofu þá verður því ekki breytt og þa get ég ekki hjálpað þér vina mín.