Það er kannski lögð jafn mikil vinna við það að búa til þennan eina bol og þessar buxur. Þó að þetta sé bara bolur, þá er hann vandaður. Bómullin er þétt og góð, hún er soðin sem þýðir að hún hleypur ekki og vefnaðurinn er sterkur og endingagóður. Bara það ferlið sem bómullinn fer í gegnum er gríðarlegt, og svo þarf að hanna bolinn, sauma hann, koma honum til áfangastaðs og svo framvegis.