Semsagt 6300-7200 úti. Myndi giska á lágmark 8500 - 9500 ef ekki 10.000.
Annars hefur reynst mér voða erfitt að finna svoleiðis hérna, þar sem engin búð er með einkaleyfi á bolunum (Úti eru sérstakar LaCoste búðir með svölustu íþróttafötum í heimi).
Annars eru Polobolir yfirhöfuð flottir með gallabuxum. Skærir og skemmtilegir litir (Appelsínugulur, grænn) eru voða töff, og rendur líka. Síðan er fölbleikur alltaf klassískur.
Nei, í mínum augum er allt betra en ósmekklegir metal bolir. Ég er ekki að segja að metal bolir sem slíkir séu ókynþokkafullir en það er sumar gerðir af metal bolum sem eru verra en allt.
polo bolir sem fást víða eru flottir með svona gallabuxum… og svo til að punta sig smá upp má skella á sig svona mjótt og fínt bindi, ekki lakkrís þó, bara ósköp venjuleg bindi nema í mjórri kantinum. Það geri ég alla vega :D :P
það er alltaf flott að vera í hvítum langermabol og svo í einhverjum stuttermabol yfir. Einhverjum svona töff bol með hljómsveitinni sem þu fílar… Polobolir eru líka geðveiktir =) t.d. Lacoste =)
Ef ég sé strák niðrí bæ, sem er sona ja.. ágætur bara í útliti, svo lít ég á buxurnar, bolinn eða eitthvað af fötunum sem hann er í og það vill svo skemtilega til að hann er í volcom, þá er strákurinn allt í einu orðin mun fallegri en mér fanst við fyrstu sýn :Þ
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..