Jón Sæmundur hefur gefið nokkrum tónlistarmönnum svona jakka þegar þeir hafa komið til Íslands. Metallica og Pink eiga líka svona, og einhverjir fleiri líka býst ég við.
Svona jakkar kosta 20.000-30.000 krónur ef mér skjátlast ekki.
Skalt bara sleppa því að flokka hluti svona stelpa, átt bara vera í því sem þér finnst flott sjálfri og ekki fara eftir þessum hnakka, goth, emo flokkunum! hana nú
Ég bara þoli ekki emo krakka. Ég veit ekki alveg hvað ég myndi flokka sjálfan mig undir. Allavega ekki emo. Emo tískan er alveg hræðilega ljót.
Og ekki koma með eitthvað að það megi ekki flokka fólk, þetta er eitthvað sem allir gera án þess að vera endilega með fordóma. En auðvitað er líka fólk sem flokkar annað fólk með fordómum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..