Því miður hafa ekki allir þann valmöguleika :<
Í reynd er þetta vandamál hjá mér líka, þó svo mér sé eiginlega alveg sama. Ég vinn frá 10-18, oftast byrja ég fyrr og vinn lengur þannig sólin er varla komin upp þegar ég byrja og sést ekki þegar ég kem aftur út :P
Og þar af leiðir er ég hvítur eins og næpa.
Var að íhuga að prufa ljósbekki bara til að fá svona pínu oggu ponsu lit, svona eithvað annað en albínóa lookið sem ég er með núna, hinsvegar er ég með mikla fordóma gegn ljósabekkjum(hnakkar og allt það.)