Ef þú hefur ekki tekið eftir því þá ber þetta áhugamál nafnið tíska og útlit. Þar af leiðandi þurfa hlutir sem hingað koma aðeins að tengjast öðru hvoru, tísku eða útliti, þó jafnan tengist þeir báðu á einhvern hátt.
Það vill svo til að húðflúr tengist útliti á allan mögulegan hátt, ég skil eiginlega ekki hvernig hægt er að segja annað - þetta er svo sjálfsagt. Útlit er ekki bara gel í hár og strípur.
Það er svo sannarlega enginn annar staður fyrir húðflúr að vera á huga.is, þetta er nýr fítus á þessu áhugamáli og er gjörsamlega kominn til þess að vera, enda hefur verið korkaflóð hérna alveg síðan ég setti þetta fyrst í gang. Sem er mjög jákvætt auðvitað og því væri fráleitt að fara að loka á þetta.
Ef þetta er eitthvað að pirra þig þá mæli ég með því að sleppa því að skoða póstana í þessum flokk, ég meina.. af hverju ekki að nýta það að þetta sé vel flokkað, það er engin hætta á að það sé korkur um eitthvað annað en húðflúr og götun hérna svo þú getur sleppt því að skoða þá alla.