Ég er með bólu á miðnefinu, eða, svona akkúrat staðurinn sem “sniperunrnar” í bíómyndunum miða á með rauða laser-ernum. Ógeðslegt! Og það versta er að hún er bara þarna, og búin að vera þarna í svona 5 daga!
Og ég klóra mér þarna, já, og ef ég rekst í hana, þá tárast ég næstum vegna sársauka =/ Hvernig losna ég við hana ÁN þess að kreista? -Og bara allar bólur sem eru svona eins og þessi?
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið
já, reyndar… en það er enginn tilgangur í að kreista rauða bólu. Þá verður hún bara pirruð og hefnir sín með því að stækka. Maður á bara að kreista hvítar graftarbólur.
Ef þetta kemur oft þá myndi eg fara til læknis og biðja um doxytab , eg var svakalegur i andlitinu og um leið og eg byrjaði a þessum toflum þá bara .. eigilega skánaði allt og er að fara núna
ég veit þú ert gaur, en desperate times call for desperate masures… stelstu upp í skápinn til mömmu og náðu þér í bóluhyljara (töfrapenna) og smá púður, penslaðu yfir hana með pennan og púðraðu á eftir, það gerir bóluna allavega ekki eins augljósa, þess á milli skalltu bara halda húðinni hreinni og borða holt, þá fer hún :)
Haha =D Já, ég gerði það fyrir árshátíðina hjá mér.. Virkaði vel þangað til ég fór að svitna eins og apaköttur, þá fór ég á baðið, og þurkaði þetta jukk framan úr mér, og hélt áfram að dansa :)
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið
Hreinsaðu bara andlitið á þér vel, mæli með því að taka bómullarhnoðra og setja nokkra dropa af Sólhatti í hann og dumpa létt á allt andlitið, bíða svo í smá stund meðan efnið er að komast inní húðina og svo tekur maður bara Jojoba olíu og setur á allar bólur…..
Þetta er mjög sótthreinsandi og Sólhatturinn er það besta sem ég veit. T.d þegar meður er með kvef, þá er gott að setja vatn í flösku og setja um tvo dropa af Sólhattinum oní….. Þetta drepur allan andskotann og virkaði fjári vel á smettið á mér…
Eini gallinn er að þetta tekur smá tíma, en ef þú gerir þetta á hverju kvöldi gæti þetta tekið viku kannski Og ekki kroppa eða klóra… Harð bannað nema þú viljir fá ör á andlitið
ég fikta alltaf eithvernvegin í mér (þessum rauðu, stóru helvítum) allveg þangað til að ég fæ sár, stórt sár… ég mydi ekki reyna að klóra hana mikið 8-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..