flott að þú sért búinn að redda asnalegu dreddunum :)
farðu í Exodus (held að þetta sé rétt skrifað) þar færðu spes dreddasjampó og vax líka ef þú vilt.
annars er líka í lagi að nota Aloa vera sjampó í hársrótina.
það er hægt að gera prufu á sjampóum:
þvo sér vel um hendurnar með sjampói sem þér langar að nota. skola og þurka.. og svo áttu að þefa vel af höndunum.
ef það er einhver lykt af höndunum að þá áttu ekki að nota sjampóið, því að þá mun það alltaf skilja eftir einhver aðskotaefni eftir í dreddunum.
ef að það sé engin lykt að þá er það í lagi.
ég vil líka benda þér á þessa síðu, hún er frábær!
http://www.dreadheadhq.com/instructions/dreadlocks_instructions_1.htmlþað á líka að vera hægt að versla einhver dreddahráefni í gegnum þessa síðu, en ég hef ekki prufað það
og í sambandi við þessar húfur (ég hef aldrei notað þetta) að þá geturu kanski heklað, saumað eða prjónað þetta, eða fengið einhvern til að gera það fyrir þig
P.S. ég hef ágæta reynslu af dreddum