hmmm…..ég var þarna í september og keypti mér ansi mikið af drasli….
Það fer samt eiginlega bara eftir því hvað þú fílar hvar þú verslar…
Ég fór t.d á Carnaby street (held það sé skrifað svona) sem er rétt hjá Picadilly. Það er rosalega mikil stelpugata og hún er svolítið svona öðruvísi og retro…alla vegna sumar búðirnar…
Svo er náttúrlega Oxford street hún klikkar aldrei…
Camden…alveg frábært..
Svo eru fata og glingurs markaðir á hinum ýmsu stöðum í London, um helgar minnir mig (kannaðu samt betur hvaða dagar það eru)..
Þar geturu fengið ýmislegt flott og öðruvísi…
T.d hljómsveitaboli af öllum gerðum sem þú færð ekki hérna í Dogma…..slæður, trefla, eyrnalokka…indverskt og afrískt og ég veit ekki hvað..rosa stemmning