Hey, speak for your self. Ég er með jurtatattoo og það er ekkert ljótt. Það kostaði 5000 kall og mér finnst það geðveikt flott. Er búin að vera með það í eitt ár. Ég hef séð jurtatattoo dofna og það er svosem ekkert svo ljótt. Það fer eftir því hvernig myndin er. Auðvitað er það frekar ljótt að vera með tattoo sem að er að fara af eins og listaverk eftir penna þegar að maður er búin að hella vatni yfir það.
En það er ekki hægt að alhæfa þetta svar þitt. Ekki öll jurtatattoo fara svona illa. Svo tekur það ekki tíu ár að byrja að dofna. Það fer algjörlega eftir viðkomandi manneskju.
Tattooin sem að konan sem setti mitt tattoo á eru mörg farin að dofna og það tekur líkamann hennar ekki nema fimm ár að losa sig við þennan “aðskota hlut” af líkamanum.
Ég er ekki sammála þér í þessu. Ekki er hægt að alhæfa svonalagað.
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…