Ímyndu þér þig með Gat/Göt og ímyndaðu þér svo að þú værir í fjölmenni, ókei soldið flókið kannski en á hvaða stöðum værir þú stolt með að hafa göt ? sem þú virkilega teldir götin vera “þig” i.e representar þig =),
Sjálfur er ég með göt í eyrum, geirvörtum og svo með tvöfalt gat í vörinni, þ.e setti hring undir vörina á mér, ég er mjög sáttur og stoltur með það gat því mér fannst alltaf flott hipp og kúl að hafa hring í vörinni/gat í vörinni en það pirraði mig alltaf að kyssa konuna mína og hringurinn myndi flækjast fyrir, og hana nú, kominn með hring undir vörina og ég finn aldrei fyrir honum.
og á aðra vísu, fólk talaði um að fá gat “undir” vörina eða hring í vörina, note; til að fá sér hring í vörina þarf maður fyrst að fá sér gat í vörina (þ.e Lokk undir vörinni) og leyfa því gati að gróa að mestu/algeru leyti annars á fólk hættu á lítt skemmtilegri sýkingu.
Ég fer með öll mín göt í Tattoo og Skart og hafa þau öll komið út eins og ég hef hugsað um þau, hugsa illa um þau = sýking, hugsa vel = engin sýking og hamingja. :)