Eitt mitt helsta áhugamál er fatahönnun…ég er búin að vera ákveðin í því að starfa sem hönnuður, og búin að hanna föt í frístundum síðan ég var smástelpa, það er bara takmarkað af efni um slíkt.
Ég veit ekkert um margt sem ég væri til í að ræða sbv. fatahönnun á Huga. Ég hef ákveðna uppáhaldshönnuði, en ég hef ekkert um þá að segja, nema Coco Chanel, en ég sendi inn grein um hana fyrir rúmu hálfu ári eða svona og henni var vel tekið. Hvað viðkemur minni hönnun vil ég ekkert um hana tala fyrr en ég get komið henni á framfæri ;) hehe
En ég skil þig algjörlega og það væri gaman að geta rætt um þetta, ég bara sé persónulega ekki hvernig miklar umræður gætu skapast um hönnun hér á Huga.
En eins og ég segi, það er bara mín skoðun og það er frábært að einhver skuli vekja athygli á þessu!
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'