Getur eitthver hér sagt mér hvar ég get fundið flottar gallabuxur sem kosta svona 10-12 þúsund kall. Ég vil helst ekki blend því ég á nó af því og mig langar að prófa eitthvað annað. Var að pæla hvað Levi's buxur kosta, en bíst við því að þær séu soldið í dýrari kantinum, eða það var mér sagt..
það eru til diesel buxur á 10-12 þúsund kall, svona þær sem eru í ódýrari kanntinum. sama á við um levis, samt örugglega til meira af levis buxum á þessu verði. Topshop á alveg pottþétt töff buxur á þessu verði og bara fullt af búðum.
held að þa séu engar levis vöruru í top shop, er samt ekki pottþéttur á því, en ef þær eru þar, eru þær líklegast á sama verði og í levisbúðinni, þannig ef þú ættlar að fá þér levisbuxur, farðu þá bara í eikkerja af levis búðunum ;)
Ég er alltaf jafn ánægð með Only buxurnar í Vero Moda og þær eru undir 10.000 kallinum. Flottar í sniðinu og endast asskoti vel. Ég sá líka nýtt merki í Vero Moda sem kallast Object minnir mig. Flottar buxur sem kosta um 10-11 þúsund. Ég hef samt enga reynslu af þessu merki.
Keyptu þér Levis, langt flottustu buxurnar og ekki það dýrar. Levis fæst ekki í TopShop, en þær fást í levis búðunum, smash og deres. Ég held ekki á fleiri stöðum.
jamm ég er búin að kaupa mér buxur og ég keypti mér gas
ég mátið svona 2000 levis buxur en það var alltaf eitthvað við þær sem fór í taugarnar á mér, síðan fann ég einar sem pössuðu fullkomnlega en síðan kom í ljós að þær voru 1000 kalli of dýrar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..