Ég hef stundum gert þau mistök að kaupa maska sem er raunverulega fyrir feita húð og þurrkar þá mína húð. Fyrir þær sem eru í sömu sporum held ég að Body shop selji maska fyrir þurra húð. Svo hef ég einnig heyrt að stappa avokado og setja það á húðina sé mjög gott.
Mér myndi aldrei á æfi minni láta mér einu sinni detta það í hug að stappa avókadó og bera það á mig… Og fyrir þá sem að myndu segja að ég skilji þá ekki þá hef ég verið með það þurra húð að mér hefur blætt…..
Ég er með gott ráð! Blandaðu þremur matskeiðum af kakódufti (minnir mig) og þremur matskeiðum af mjólk saman og hrærðu aðeins í því og notaðu það sem maska. Virkar mjög vel, gerði þetta einu sinni og húðin mín var silkimjúk =)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..