Minnir að það hafi verið eitthvað um 4000 kall.
Þú þarft samþykki foreldra ef þú ert ekki orðin 18 ára.
Þegar það er verið að gera þetta þá segiru gataranum hvar gatið á að vera, hann merkir það með penna og þú færð að skoða hvort þetta sé alveg réttur staður.
Svo er tekin töng, vörin tosuð út og stungið í gegn. Svo er lokkurinn settur í og þá er þetta búið, tekur 5 mínútur ca.
Verður samt alveg slatta bólgin í 2 daga eftir á.
Gatarinn sagði við mig að þetta væri einn af verstu stöðunum til að fá gat á, útaf öllum taugunum þarna í kring. Er með gat lengst til hægri í vörinni. En ég fann samt ekkert of mikið fyrir þessu, þó að þetta hafi ekki verið þægilegt:)