Hár getur verið á allan hátt, bæði náttúrulegt og ónáttúrulegt. Mín ágiskun er að einhver þessara manna hafi verið með rennislétt hár og þeir hafi ákveðið að heildarútlitið ætti að vera sítt, rennislétt hár. Því held ég að einhverjir þeirra hafi farið í meðferð með hárið, eða ofnoti sléttujárnið! :)
Hár er ofboðslega misjafnt. Hárið á mér er það krullað að ef ég greiði það lít ég út eins og Hermione er lýst í Harry Potter bókunum. Við reyndum líka einu sinni að slétta það, en það varð í fyrsta lagi ekki almennilega slétt, og í öðru lagi entist það í innan við korter. :P