Mér finnst Christina Aguilera þó samsvara sér betur en Britney Spears. Einnig finnst mér Christina betri fyrirmynd, hún er ekki alveg jafn mikil glenna :) Hafið þið t.d. séð nýjasta myndband Britney Spears? Þetta er dæmi um svona lag sem er BARA búið til til þess að geta gert myndband við það. Mamma hennar vildi meira að segja láta banna birtingu þess en það er sýnt aftur og aftur og aftur. Hún er ekkert nema útlitið og textar hennar eru slæmir, sérstaklega ef tillit er tekið til þess að flestar þær stelpur sem eru að hlusta á hana eru mjög ungar!
Hins vegar finnst mér það sýna svolítið vel hversu brengluð kvenímyndin er orðin í dag að þegar ég fer t.d. út í búð get ég hvergi fengið buxur sem passa á mig (ég er 1,73 og rétt undir kjörþyngd, frekar fit og stuff) og bolir, peysur, skyrtur og svoleiðis gera EKKI ráð fyrir stelpur/konur séu með brjóst AT ALL þess vegna verða bolirnir alltaf of stuttir í mittið eða skyrturnar of þröngar yfir brjóstlínuna.
Ég tel mig nú ekki vera mikla kvenrembu eða eitthvað svoleiðis en þetta er í alvörunni farið að pirra mig svolítið.