Hvað ef manni finnst það ekki geðveikt flott en ekki fáránlegt að vera með spangir.
Mér persónulega finnst ekki flott að vera með spangir, en ég skil fólkið vel, ég væri til í að hafa tennur eins og sumir hafa eftir að hafa verið með spangir.
Þúst málið með spangir eru að þær eru sjúklega ljótar þegar að maður er með þær(fer samt sumu fólki vel á einhvern skrýtinn hátt:S) en um leið og þær fara að þá eru tennurnar á manni bara flottar sko
Það er satt að það vantar e-n valmöguleika sem er ekki svona ýktur í báðar áttir.
Ég var með spangir í einhvern tíma og ég þoldi það ekki(elska samt tennurnar á mér síðan þá ;)…en mér fannst það ekki ‘geðveikt fáránlegt’…mér finnst frekar ljótt að vera með teina en mér finnst það ekkert ‘geðveikt fáránlegt’ heldur. Það er eins og maður verði að hafa rosalega sterkar tilfinningar í garð teina og fólks með þá…ef e-ð er að marka þessa könnun.
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..