Ég var ekkert að segja að þú ættir að vita það að ég væri með sveipi, en ég var að benda þér á að það þýðir ekki að gera ráð fyrir því að einhver viti ekki hvað hann er að tala um.
Ég bara hef engar áþreyfanlegar leiðbeiningar til að koma til þín, ég mundi gera það ef ég gæti. Hins vegar fór ég á hárgreiðslustofu og þar spurði ég hvort ég ætti einhvern möguleika á að losna við þessa sveipi mína. Þar var mér sagt að ég gæti keypt professional-sléttujárn á 9500 krónur (fæst á hárgreiðslustofum ef þú átt ekki þannig og hefur áhuga) og það mundi bjarga mér. Ég trúði því þar sem að hárið á mér var alltaf alveg slétt þegar ég kom heim úr klippingu og litun, og þar er notað eins sléttujárn. Síðan þá hef ég notað það sléttujárn og tekið ca. 20 min i það að slétta á mér hárið með því eftir hvern hárþvott.
Ég er ekkert að segja að þetta muni virka í þínu tilfelli, ég er bara að benda á það að það er ekki jafn ótrúlega ómögulegt að laga sveipi í eins og þú segir.
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'