sko, það sem ég mundi gera er þetta: þú ert með náttúrulega liðað hár, en það finnst mér í fáum tilvikum flott, þannig að ég mundi alltaf slétta það, kanski ekkert alveg rennislétt, en svona að mestu, og ef þú nennir þá getur sett smá froðu í það og blásið, bara smá, ekki alveg 80s stórt hár. en já, ef þú tímir þá mundi ég setja 2 liti í hárið, þannig að það verði svona frekar ljóst með soltið brúnt undir. það er reyndar mjög dýrt, þannig að kanski dugir bara að setja smá ljósar strípur. hvað klyppinguna sjálfa varðar, þá mundi ég klyppa svona ská topp, ekki hafa hann mjög stuttan, þannig að hann sé frekar síður á öðrum endanum. svo mundi ég hafa smá styttur í hliðunum, ekkert öfga, en svona smá :)