Ég er ekkert mikið inní strákatísku ofl. en ég veit hvað mér finnst flott.
Ekki lita hárið á þér í neinum ónáttúrulegum lit, ekki einu sinni blæ. Ég veit um strák sem var með svona skollitt hár og bara ljósar strípur og það var bara fínt. Svo mætti hann einn daginn með einhvern svar-rauð-fjólubláan lit á hárinu og það var hræðilegt. Ég hélt að það væri bara skol en svo er hann held ég enn með þennan lit í dag :S hehe, en þetta er bara mín skoðun.
Mér finnst yfirleitt mjög flott ef strákar eru með bara smá ljósar strípur og ekki með neitt of stutt hár. Það getur líka verið flott að heillita í einhverjum millibrúnum, eðlilegum lit, ef þú heldur að það fari þér.
Ég veit ekki hvaða stofur eru bestar fyrir stráka, því miður. En hárgreiðslustofan mín heitir Hársmiðjan og er frábær, alvöru fagfólk og ekkert svo dýrt, þú gætir tjekkað á henni.
Gangi þér vel ;)
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'