Ég átti við þetta sama vandamál að stríða en systir mín sem er snyrtifræðingur og hefur mjög mikla reynslu af því að fást við svona hluti gaf mér mjög gott ráð.
Keyptu þér eins hreint aloe vera gel og þú finnur, þvoðu andlitið áður en þú ferð að sofa og berðu það á neðra augnsvæðið, eftir nokkra daga af þessu eru baugarnir nánast horfnir.
Einnig er rétt að drekka eins mikið vatn og þú getur, borða grænmeti og neyta eins lítis áfengis og þú getur, einnig að minnka salt neyslu og sofa nóg :D