Hún gæti prófað að fara á snyrtistofu og láta vaxa hárið af ef að henni líður illa útaf þessu. Hún getur auðvitað líka keypt vax í apóteki og gert þetta heima sem er miklu ódýrara en það er yfirleitt betur gert á snyrtistofum og endist aðeins lengur. Ef að hárin eru mjög dökk þá getur hún líka prófað að kaupa efni til þess að lýsa hárin (fæst í apótekum og hagkaup og á fleiri stöðum) og þá sjást þau kannski ekki eins mikið.