Jamm, ég get nú sagt fyrir mitt leyti að ég tek aldrei eftir sokkum, get þó kanski séð að það gæti verið ósmekklegt að vera í gráum sokkum við dökk jakkaföt, annars myndi ég nú bara fíla strák í 1 gulum sokk og 1 bleikum! Það er nú bara ég ;O)
Ég er ein af þessum stelpum sem er ekki með skó á heilanum, á kanski 3 pör, e-ð svoleiðis, en það virðist eins og stelpur skiptist í tvennt hvað þetta varðar, sumar eru með skó brjálæði, dýrka þá og eiga mikið af þeim, svo eru þær sem pæla lítið í skóm, eiga bara nokkur traust pör.
Ég tek alltaf fyrst eftir augum á fólki og pæli soldið í því en ég á vinkonu sem pælir alltaf fyrst í skóm fólks! soldið skrýtið en hún hefur bara virkilega gaman af skóm og getur sagt hvaða skó allir bekkjarfélagar hennar eiga! Freaky Deaky ;O)
Annars eru margir skór sem mér finnast flottir, gulir og grænir Gola strigaskór eru draumaskórnir mínir (átti soleiðis! sælla minninga.. :) og svo allskonar strigaskór helst í litum, svo eru litlu lágbotna skórnir með tá sem eru voða mikið núna mjög flottir og þessi neon bleiku sem voru í glugganum á 17 mjög flottir! Annars myndi ég helst vilja eiga alla skóna í Kron og kínaskórnir í Kolaportinu voru flottastir (en sá flotti bás er ekki lengur til :(
Vonandi gaf þetta þér einhverja innsýn inn í skó heim stelpna :D <br><br>
“Drop that zero and give it to hero…”
(Vanilla Ice í Cool As Ice, tíhí ;)