Það er amk hægt að fá punk royal buxurnar í centrum sem er eiginlega við hliðina á Sautján í kringlunni og er meira að segja hluti af þessu NTC dót sem 17, smash, deres, morgan o.fl. er. En punk royal buxurnar kosta því miður 9900 kr (helv*** okur á fötum nú til dags) en það er hægt líka að fá svipaðar buxur í spútnik á 3900 sem eru rosalega flottar og svo eru líkar aðrar svipaðar í sautján, aðrar á 3900 og hinar á 9900+. Eini munurinn á þessum buxum er að á öðrum buxunum er einhver málningarklessa sem lítur t.d. út eins og fugl en þær eru með sama sniði. Svo eru það das capital buxurnar í Retro sem eru ansi flottar og til í fleiri útgáfum, s.s. camo, svartar, grænar og köflóttar. Þetta er orðið svolítið mikið, þarf að hætta en gæti haldið endalaust áfram,var að ðæla í svona buxum fyrir jólin en endaði svo með að fá mér rosa sætar flauelsbuxur ú Only. ok,ok, er hætt. Vona að þetta gagnist þér e-ð.
“Against boredom, the gods themselves struggle in vain.” — Nietzsche