Zilkha er þekkt fyrir kvenleg föt með tilvísun í fortíðina og var það vel sjáanlegt á sýningunni í morgun. Zilkha hefur starfað í tískuiðnaðinum sl. 11 ár og á meðal þeirra sem reglulega sjást í fötum frá henni er Kate Winslet.
Tískuvikan í London stendur til 16. september. Á meðal hönnuða sem eiga eftir að sýna í dag eru Russell Sage og Elspeth Gibson en alls eru yfir fjörtíu hönnuðir eða fyrirtæki sem munu sýna.
Kv. EstHer