Get ekki séð hvaða máli það skiptir hvort þessar stelpur eru með sílikon eða ekki, það bara skiptir ekki máli. Það er þeirra mál hvort þær vilja vera með sílikon í brjóstunum eða ekki og það kemur ykkur alls ekki við. T.d er ekki hægt að vera segja það að einhver sé með einhver klámmyndabrjóst bara vegna þess að hún er með stórbrjóst ja þvílíkt kjaftæði og vitleysa verð ég nú að segja og hvers vegna í andskotanum er þetta pirra þig svona kissy ég nú bara spyr.
Þú ert alveg greinilega bara svekkt yfir því að vinkona þín hafi ekki unnið þessa keppni.
Svo skaltu líka halda þínum skoðunum varðandi hana Írisi fyrir þig og þið sem takið undir þetta rugl með henni skuluð líka halda þeim fyrir ykkur. Hún er alveg ágætis stúlka og vil öllum vel sem eru í kringum sig og reynir eftir fremsta megni að koma kurteisislega fram og vera þjóð sinni til sóma.
Vegna þess að það er eitt það lúalegasta sem til er að vera gagnrýna annað fólk og gera lítið úr því og það sérstaklega undir dulnefni enda lýsir það bara þeim einstaklingum sem þannig haga sér best. Svona fólk ætti fyrst að líta í eigin barm áður en það fer að gagnrýna aðra fyrir hvernig þeir eða þær eru vegna þess að ekkert okkar er fullkomið.
Svo er ég líka viss um það að það væri alveg sama hver vinnur þessar keppnir það verður alltaf til fólk eða einstaklingar sem virðast hafa það eitt að gera að finna allt að öllum og setja út á fólk og skiptir þá engu máli hver á í hlut í hvert skipti.
Það er nefnilega stór munur á málefnalegri umræðu á móti niðurrifs, öfund, illkvittnis og skítkasts umræðu.